Myndina af þessu glæsilega eldhúsi fékk ég hér
Mjög sjarmerandi eldhús. Bitarnir í loftinu ...rennihurðin með
krossböndunum finnst mér æðislega falleg og eins liturinn á eyjunni og
borðstofuborðinu þessi brúngrái litur með hvítu er bara æðislegur ... ég
talan nú ekki um flísarnar á gólfinu ekta country lúkk!
Innanhús hönnuður Lisa Luby Ryan frá Dallas er Mastermindinn á bak við þessa ótrúlegu umbreytingu á eldhúsinu hér á myndunum fyrir neðan. Hún sérhæfir sig í Sænskum stíl.
Það er eitthvað svo sjarmerandi við svona "notuð" húsgögn (eyjan) þegar því er blandað við nýtt! fallegt hvíta leirtauið sem er sett í hillurnar , það er ekki sama hvernig hlutirnir eru gerðir :)
Hérna eru fleiri hugmyndir sem ég hef safnað á pinterest síðuna mína.