Showing posts with label jólatréð skreytt. Show all posts
Showing posts with label jólatréð skreytt. Show all posts

Friday

JÓLATRÉÐ SKREYTT

 Ég valdi Normans þin þetta árið , ég hef í mörg ár haft gerfijólatré en langaði að breyta til þetta árið ...fannst þessi stærð á jólatré vera svolítið "krúttleg" eða þannig 😊

GLEÐILEG JÓL 😊💓💖

Saturday

NOTALEG JÓLASTEMMING



Maria Holm undirbýr jólin á heimili sínu en hún býr í glæsilegu húsi byggt árið 1920 í Herrljunga í Svíþjóð. Hún útbýr  fallegar jólaskreytingar úr náttúrulegum endurunnum efnum . Myndirnar tala sínu máli 😊Notaleg jólastemming.










Gleðilega aðventu
HEIMILDIR: LANTLIV


Jólatréð skreytt

Búin að skreyta jólatréð. Ég keypti þetta tré  í Sia fyrir einu ári síðan .  það er algjör draumur að þurfa ekki að setja jólatrésseríu á tréð!
Flest allt skrautið sem er á jólatrénu er ég búin að eiga í mörg ár! ...og allar góðu minningarnar frá fyrri tíð  rifjast upp !
  (Mynd fyrir neðan) Ballerína

(Mynd fyrir neðan)  þessi skautastelpa er alltaf svo fín! Búin að eiga hana í mörg ár!


(Mynd fyrir neðan) Þetta skraut bjó Hinrik minn til og gaf
ömmu sinni fyrir nokkrum árum síðan.
(Mynd fyrir neðan) Hjartans barnabörnin mín eru jólaskrautið mitt í ár! Mynd af barnabörnunum litlum og síðan hinu megin á hjartanu eru myndir af þeim eins og þau eru í dag:)

Bangsar eru svo sætir !

Þennann engil hef ég oft haft á toppnum á jólatrénu ,hann er svo fallegur og nýtur sýn vel á sófaborðinu!

 ♥ Kveðja K.K.  ♥

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...