Monday
Thursday
Monday
Sunday
Í anda Karenar Blixens
Listakonan Cecilie Westh og eiginmaður hennar Thomas hafa valið húsgögnin í fallega húsið sitt án þess að það kosti einhverja formúu af peningum, allt innanhúss er samansafn af gömlu og nýju sem þau hafa keypt á mörgum ferðum sínum um heiminn.
Frábært heimili Cecilie Westh ,Innblástur fékk hún frá kvikmyndinni "Out of Africa" frá 1985 - Ævisögu Karen Blixen með Meryl Streep og Robert Redford í aðal hlutverki.
Teppið er ættargripur.
Púðar og teppi frá Day Home og leslamparnir eru frá Bloomingville
Sjónvarp í baðherberginu : Glæsilegt baðherbergi flísalagt með sandi lituðu - perlu gler - mósaíki, Innbyggt baðkarið gefur þessu baðherbergir "Spa Look" og sjáið svo hvar sjónvarpinu hefur verið komið fyrir ...
Forstofan: Langur renningurinn frá Day Home býður fólk velkomnir í þetta fallega hús með vel varðveittum smáatriði frá liðnum tímum. Fallega háa kommóðan og spegillinn með fallega gull rammannum eru erfðargripir.
Séð inn í studíó Listakonunnar Cecilie Westh
Ljósmyndari: Kira Brandt Rasmussen
Takk fyrir innlitið kæru vinir... ♥
D I Y - Gluggahlerar
Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera úr gömlum hlutum eða húsgagni sem aðrir eru hættir að hafa not af !
hérna eru flottar hugmyndir að því hvernig má nota gluggahlera á ýmsan hátt - En því miður eru gluggahlerar eins og þessir ekki algengir hér á landi og örugglega ekki í boði hjá Góða hirðinum eða hjá Notað & Nýtt .
En hún er flott þessi Franska síða hjá Madame B
En hún er flott þessi Franska síða hjá Madame B
P.S : Rúllið ykkur neðst á síðuna til að sjá bloggið hjá Madame B
Takk fyrir innlitið kæru vinir ♥
Subscribe to:
Posts (Atom)